• Dagskrá
    • Vorönn
    • Haustönn
  • Nýja Avalon miðstöðin
    • Um Okkur
    • Aðild að lífsskoðunarfélagi
    • Gerast styrktaraðili
    • Bóksala
    • Myndasafn
    • Hafa Samband
    • Guðspeki
    • Ananda Tara Shan
  • Kirkja hins upprisna lífs
    • Um kirkjuna
    • Aðild að trúfélagi
  • Tenglar
  • Fréttir
  • is | en
  • Tenglar
  • Fréttir
  • Dagskrá
    • Vorönn
    • Haustönn
  • Nýja Avalon miðstöðin
    • Um Okkur
    • Aðild að lífsskoðunarfélagi
    • Gerast styrktaraðili
    • Bóksala
    • Myndasafn
    • Hafa Samband
    • Guðspeki
    • Ananda Tara Shan
  • Kirkja hins upprisna lífs
    • Um kirkjuna
    • Aðild að trúfélagi
  • 144_4468

    Velkomin á heimasíðu
    Guðspekisamtakanna í Reykjavík,
    Nýju Avalon miðstöðvarinnar

Regnbogaheilunarhringur

Námskeið 13. mars 2003

1. janúar 2003

Fimmtudaginn 13. mars kl. 20 verður námskeiðið Regnboga heilunarhringur. Regnboga heilunarhringur er röð leiddra heilunarhugleiðsla þar sem unnið er með hið guðdómlega heilunarljós Hjartaflæðis í gegnum mismunandi eiginleika og liti. Hugleiðslurnar er hægt að nota með það markmið að heila jörðina og mannkynið. Á námskeiðinu er kynning á hugleiðslunum og fá þátttakendur þær síðan í hendur til að nota fyrir sig eða með öðrum. Höfundar þessara hugleiðsla eru Ananda Tara Shan og Annie Hartley-Allen. Þátttökugjald er kr. 200 auk þess sem greiddur er prentkosnaður bæklingsins sem inniheldur sjö hugleiðslur.

Lesa meira

Innsýn í hópastarf á nýrri öld

Námskeið með Jan Ruben

1. september 2000

Námskeið með Jan Ruben laugardaginn 18. nóvember kl. 10-17. Námskeiðið ber yfirskriftina Innsýn í hópastarf á nýrri öld. Á námskeiðinu mun Jan leiða þátttakendur í hópæfingum auk þess að vera með fræðileg innlegg sem byggja á guðspeki og nútíma sálfræði. Jan Ruben er ritari Guðspekisamtakanna í Skandinavíu og hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða á vegum Guðspekisamtakanna.

Þátttökugjald er kr. 3.000.-

Lesa meira

Heimsmyndunarfræði - Cosmogony

Tveir fyrirlestrar með Con Xanthos

1. ágúst 2000

Föstudaginn 25. ágúst og mánudaginn 28. ágúst kl. 20 verður Con Xanthos frá Ástralíu með fyrirlestra um Heimsmyndunarfræði sem bera yfirskriftina Að verða takmarkalaus - okkar óendanlega andlega ferðalag. Í fyrirlestrunum mun Con fara yfir nokkur af hugtökum heimsmyndunarfræðanna út frá guðspekilegu sjónarhorni. Con Xanthos hefur numið dulspekileg vísindi í rúm 15 ár. Hann hefur haldið fyrirlestra og námskeið um ýmis dulspekileg efni í fjölmörgum skólum Guðspekisamtakanna í Ástralíu og Danmörku.

Lesa meira

Heilunarskólinn 4. ár

Kennsla hefst í október 1999

16. apríl 1999

Nemendum Guðspeki-heilunarskólans sem lokið hafa tveggja ára grunnnámi og 3. árs framhaldsnámi skólans býðst að taka þátt í fjórða árinu sem samanstendur af fjórum helgum frá október nk. til mars 2000 auk sérstakrar útskriftarhelgar "Vængjaðs heilara" sem fram fer í maí 2000. Áhugasamir hafi samband við Eldeyju Huld Jónsdóttur skólastjóra skólans.

Lesa meira

Innsetning í heimsþjónustustarf

námskeið með Else Sildorf

1. janúar 1999

Öllum sem vilja veita aðstoð sína á hagnýtan andlegan hátt er boðið upp á kennslu til að auðvelda þeim að sinna heilunarstarfi á heimsvísu. Á námskeiðinu verður hagnýt og fræðileg kennsla um:

* Að skilja plánetuveruna og heimsheilun.

* Helgistjórnina, innri stjórn jarðar og hlutverk og ábyrgð mannkynsins

* Samvinnu við Avatar Samrunans

* Vinnu með Herranum Maitreya

* Að vinna með englum

* Hvernig á að stjórna Heimsheilunarþjónustu

* Hvernig á að leiða orku

*Rétt notkun tónlistar í heilun

Kennari er Else Sildorff frá Danmörku en hún leiðir starf Guðspekisamtakanna í Kaupmannahöfn og er ein af stofnendum og aðalkennurum Guðspeki-Heilunarskólans þar í landi.

Námskeiðið verður laugardaginn 13. febrúar kl. 10 - 18 og er opið öllum 18 ára og eldri. Kennsla fer fram á ensku en þýtt er á íslensku. Skráning á skrifstofu og er aðgangur ókeypis.

Lesa meira

Guðspeki - heilunarskólinn

Framhald - þriðja ár

1. september 1998

Helgina 24. og 25. október hefst eins vetrar framhaldsnám í Guðspeki - heilunarskólanum þar sem kennt verður eina helgi í mánuði fram í apríl. Þátttakendur sem lokið hafa tveggja ára grunnnámi Guðspeki - heilunarskólans geta skráð sig á framhaldsnámskeiðið hjá Eldeyju Huld Jónsdóttur.

Lesa meira

Boris Guslitser með tónleika í Salnum

Dagskrá í tilefni af heimsókn Anöndu Töru Shan

11. ágúst 1998

Boris Guslitser píanóleikari heldur tónleika í Gerðarsafni Kópavogi fimmtudaginn 17. september kl. 20 og laugardaginn 19. september kl. 20. Dr. Boris Guslitser hefur getið sér orðstír sem afbragðs konsertpíanisti í Ísrael og fyrrum Sovetríkjunum. Boris mun flytja verk eftir Beethoven, Chopin og Liszt. Dagskráin verður auglýst þegar nær dregur.

Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Miðaverð kr. 1.200.-

Skipuleggjendur og styrktaraðilar tónleikanna eru: 

Guðspekisamtökin í Reykjavík.

Lesa meira

Ananda Tara Shan á Íslandi

Dagskrá á Grand hóteli

30. maí 1998

Guðspekisamtökin standa fyrir dagskrá á Grand hótel Reykjavík helgina 19. og 20. september. Gestir eru ástralski guðspekikennarinn Ananda Tara Shan sem jafnframt er stofnandi Guðspekisamtakanna og Tarajyoti Govinda sálfræðingur og andlegur heilari. 

Laugardaginn 19. september frá kl. 15 - 18 mun Ananda Tara Shan segja frá Maitreya og Börnum hjartans. Síðan svarar hún spurningum frá þátttakendum. Ætlunin er að skapa afslappað síðdegi með samræðum og upplyftandi tónlist sem flutt verður af áströlskum tónlistarmönnum. 

Lesa meira

Þjónusta við mannkynið

fyrirlestur og námskeið með Jan Ruben

1. mars 1997

Í byrjun júní kemur Jan Ruben til landsins á vegum Guðspekisamtakanna en hann er einn af stjórnendum samtakanna í Danmörku. Yfirheiti dagskrár hans er Þjónusta við mannkynið (Serving humanity) og samanstendur hún af fyrirlestri fimmtudaginn 5. júní kl. 20 og námskeiði laugardaginn 7. júní frá kl. 10 - 17. 

Á fyrirlestrinum fjallar Jan Ruben m.a. um hugtakið þjónusta við mannkynið sem leið að:

finna andlegt frelsi; auka næmni; auka hugræna virkni; og þroskast með því að deila með öðrum.

Aðgangseyrir er kr. 500.-

Námskeiðið á laugardeginum er bæði í formi innleggs frá Jan Ruben og æfinga/hópvinnu. Áherslan er á þjónustu við mannkynið með réttum mannlegum samskiptum og kemur hann m.a. inn á eftirfarandi: 

* ótta einstaklingsins við að týna sjálfum sér við það að verða hluti af samfélagi.

* hópþjálfun og hópheild

* hópvígslur

Aðgangseyrir er kr. 3.500.-

Skráning er í miðstöðinni. 

Lesa meira

Guðspeki - Heilunarskólinn

Tveggja ára nám í andlegri heilun

1. apríl 1996

Næsta haust hefur göngu sína nýr heilunarskóli sem hefur hlotið nafnið Guðspeki-heilunarskólinn. Um er að ræða tveggja ára grunnnám þar sem kennt er eina helgi í mánuði og eitt kvöld. Skólinn er systurskóli The Theosophical healing school sem starfræktur er í Daylesford í Ástralíu í samstarfi við höfuðstöðvar Guðspekisamtakanna. Skólinn hér á landi er rekinn í samstarfi við Guðspekisamtökin í Reykjavík. Skólastjóri er Eldey Huld Jónsdóttir. Auk þess sem heilunartækni samtakanna er kennd og æfð verður m.a. farið í eftirfarandi námsefni:

Miðlun ljóss og orku, Hugleiðsla, Áran og litir hennar, Áruhreinsun, Innri líkamirnir, Orkustöðvarnar, Karma og endurholdgun, Geislarnir sjö, Sálræn og andleg þróun, Undirvitundin, endurlausn þjáningar, samtalstaækni og önnur atriði varðandi heilun og ráðgjöf, Helgistjórnin, englaríkið, Heilunarstarf Krists og orka Heilags Anda, Orsök sjúkdóma, Líffærafræði, Vítamín og steinefni, Dauðinn og líf eftir dauðann, Kristallar.

Nemendur þurfa að skila skriflegum verkefnum fyrir hverja kennsluhelgi. Verkefnin eru byggð á námsefni því sem kennt er. Kennsluefni er í formi leshefta sem kennarar útbúa og auðvelda nemendum skilning á námsefninu og við úrlausn verkefna. 

Verð kr. 6.000 hver helgi. Æfingakvöldin og kennsluefni er innifalið í verðinu. Þátttakendur skili inn umsóknum í síðasta lagi fyrir lok september. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Guðspekisamtakanna. Nánari upplýsingar gefur Eldey Huld Jónsdóttir s. 5674373.

Boðið verður upp á framhaldsnám síðar.

Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað er hægt að fá hjá Eldeyju Huld Jónsdóttur.

Lesa meira

From Conflict to Harmony

Námskeið með Jan Ruben

1. febrúar 1996

Gestur Guðspekisamtakanna þessa önn verður Jan Ruben sem er einn þeirra sem leiðir starfsemi Guðspekisamtakanna í Danmörku og bróðir Anöndu Töru Shan stofnanda samtakanna. Laugardaginn 4. maí kl. 10 - 17 verður hann með námskeiðið From Conflict to Harmony þar sem hann fjallar um dýpri skilning á ferli þjáningarinnar og lögmál fyrirgefningarinnar.

Lesa meira

17 þrep til fullkomnunar

18 hugleiðslur á 9 snældum

5. janúar 1996

Hugleiðslur úr bókinni 17 þrep til fullkomnar eftir Anöndu Töru Shan hafa verið gefnar út. Þetta eru 18 hugleiðslur á 9 snældum þar sem hver hugleiðsla er um 30 mínútna löng. Í hugleiðslunum er hugleitt á eiginleika einnar plánetu í senn alls 17 pláneta ásamt hvíldarhugleiðslu. Eldey Huld Jónsdóttir leiðir hugleiðslurnar. Afsláttur fæst ef allt settið er keypt.  

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða Nýju Avalon
    28. janúar 2018
  • Arjuna og Dorthe
    1. ágúst 2017
  • Ananda Tara Shan
    1. ágúst 2016
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    1. febrúar 2016
  • Regnbogaheilunarhringur
    11. febrúar 2015
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    10. janúar 2015
  • Örlög jarðar
    23. október 2014
  • Songs of Love and Light
    1. ágúst 2014
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    1. febrúar 2014
  • Hildigaard von Bingen
    1. september 2013
  • Karma og endurholdgun
    4. apríl 2013
  • Eiginleikar hjartans
    1. september 2012
  • Konsert með Asher Quinn (Asha)
    1. júní 2012
  • Wesakskóli að Sólheimum í Grímsnesi
    1. maí 2012
  • Iceland Renewal Journey
    1. mars 2012
  • Heilun jarðar í verki
    1. janúar 2012

Nýja Avalon miðstöðin

  • Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
  • info@nyjaavalon.is
  • 898 4373