Fréttir & viðburðir

Hvað er að frétta af Nýju Avalon miðstöðinni?

Heimasíða Nýju Avalon miðstöðvarinnar hefur verið uppfærð og fengið nýtt útlit. Endilega skoðið síðuna, m.a. fréttir og myndasíður allt frá stofnun miðstöðvarinnar. 

Lesa meira

Arjuna og Dorthe

Kvöldtónleikar

Gestir Nýju Avalon miðstöðvarinnar þetta haustið eru þau Arjuna Govinda frá Ástralíu og Dorthe Klar frá Danmörku. Þau standa fyrir notalegum kvöldtónleikum 5. október kl 19 þar sem þau flytja tónlist frá hjartanu. Tónlistin er úr ýmsum áttum meðal annars möntrusöngur, innblásin lög og íhugunartónlist. Þau flytja söngva sem tengja hlustendur við andann, gleðina og innri frið. Aðgangur er ókeypis.

Lesa meira

Ananda Tara Shan

kennsla, líf og starf hennar

Í tilefni þess að 70 ár verða liðin frá fæðingu Ananda Tara Shan þann 25. september 2016 verður hátíðardagskrá í Nýju Avalon miðstöðinni dagana 24.-26. september.

LAUGARDAGUR 24. sept. kl. 10 – 13:00
Hugleiðsla, upptaka með Ananda Tara Shan
Maitreya guðspeki - kennsla Ananda m.a.:

Helgistjórnin, Mannkynið: einstaklingurinn og heildin, Örlög jarðar, Englar og geimverur

Ljóð og lífspeki eftir Ananda Tara Shan
Open House, upptaka með Ananda Tara Shan þar sem hún svarar spurningum þátttakenda.
SUNNUDAGUR 25. sept. kl. 10:15
Hjartaheilunarþjónusta
MÁNUDAGUR 26. sept. kl. 19:00
Awake, kvikmynd um ævi Yogananda.

Dagskráin er opin og aðgangur er ókeypis.

Lesa meira

Kyrrðardagar Sólheimum

Wesak

Dagana 21. til 23. apríl verða árlegir kyrrðardagar á Sólheimum. 

Gestir á Kyrrðardögum að þessu sinni eru Shri Pauli T. Pallesen alþjóðaforseti The Theosophical Fellowship og sonur hans tónskáldið Benjamin De Murashkin. Shri Pauli mun halda erindi byggt á kennslu Anöndu Töru Shan og Benjamin verður með píanótónleika í kirkjunni þar sem hann leikur af fingrum fram (improviserar). Er þetta í fjórða sinn sem Benjamin heldur tónleika á Wesak dögum. Þátttakendur skrái sig í Nýju Avalon miðstöðinni.

Lesa meira