Hvað er guðspeki?
Guðspeki (e. theo-sophia, (guðdómleg viska)) er dulspeki trúarbragða allra tíma og er kjarni sannleikans í öllum trúarbrögðum heims.
"Guðspeki þýðir það að aðhyllast öll trúarbrögð sem koma frá hinum eina Guði sem sendir til jarðar mismunandi boðbera sem koma á framfæri trúarbrögðum sem henta þeim mismunandi kynþáttum mannkynsins sem hafa gengið á jörðinni í langan tíma.
Í guðspeki þá aðhyllumst við búddisma og hindúisma, múhameðstrú, gyðingdóm og egypska heimspeki – allt sem hægt er að kalla trúarbrögð eða heimspeki, því guðspeki inniber allt þetta.
Við erum ekki ein trúarbrögð, við erum öll trúarbrögð.
Guðspekin gefur greinargóða lýsingu á þróun sálarinnar og þau lögmál sem hafa áhrif á líf allra hér á jörðu. Má þar nefna karmalögmálið og lögmál endurholdgunar. Hún segir okkur frá uppbyggingu alheimsins og andlegri uppbyggingu mannsins og hvernig maðurinn getur með andlegri iðkun haft áhrif á líf sitt og örlög ásamt því að örva andlegan þroska sinn.