• Dagskrá
    • Vorönn
    • Haustönn
  • Nýja Avalon miðstöðin
    • Um Okkur
    • Aðild að lífsskoðunarfélagi
    • Gerast styrktaraðili
    • Bóksala
    • Myndasafn
    • Hafa Samband
    • Guðspeki
    • Ananda Tara Shan
  • Kirkja hins upprisna lífs
    • Um kirkjuna
    • Aðild að trúfélagi
  • Tenglar
  • Fréttir
  • is | en
  • Tenglar
  • Fréttir
  • Dagskrá
    • Vorönn
    • Haustönn
  • Nýja Avalon miðstöðin
    • Um Okkur
    • Aðild að lífsskoðunarfélagi
    • Gerast styrktaraðili
    • Bóksala
    • Myndasafn
    • Hafa Samband
    • Guðspeki
    • Ananda Tara Shan
  • Kirkja hins upprisna lífs
    • Um kirkjuna
    • Aðild að trúfélagi
  • 144_4468

    Velkomin á heimasíðu
    Guðspekisamtakanna í Reykjavík,
    Nýju Avalon miðstöðvarinnar

Ananda Tara Shan - minning

3. nóvember 2009

Minnum á uppstigningardag Anöndu Töru Shan þann 16. nóvember. Þá eru liðin sjö ár síðan Ananda lést. Af því tilefni verður opin þjónusta kl. 20:00 í Nýju Avalon miðstöðinni.

Lesa meira

Tveir nýir bæklingar

1. desember 2009

Tveir nýir bæklingar úr ritröðinni "Lifandi orði" koma út fyrir jólin. Það er eru bæklingarnir Karma og Uppstigning.

Lesa meira

Lifandi orð

1. nóvember 2009

Væntanlegir eru níu nýir bæklingar úr ritröðinni "Lifandi orð" eftir Ananda Tara Shan. Bæklingarnir heita: Kærleikur, Samúð, Hjartaflæði, Hjartaflæði og vinnustaðurinn, Vegur Hjartans, Karma, Reiði og fyrirgefning, Páskar, Asala hátíð góðvilja og Uppstigning.

Lesa meira

Kirkja hins upprisna lífs stofnuð á Íslandi

10. mars 2009

10. mars sl. var Kirkja hins upprisna lífs stofnuð hér á landi. Kirkjan fékk skráningu sem trúfélag hjá dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu í byrjun mánaðarins. Forstöðumaður trúfélagsins er Eldey Huld Jónsdóttir.

Kirkja hins upprisna lífs byggir á lögmálum guðspekinnar, guðdómlegri visku aldanna.

Lesa meira

Magdalena, Móðir ljóss

Fyrirlestur í október

1. ágúst 2007

Fimmtudaginn 25. október kl. 20 verður Eldey Huld Jónsdóttir með fyrirlesturinn Magdalena, móðir ljóss. Í fyrirlestrinum verður fjallað um líf og starf Maríu Magdalenu og hlutverk hennar í endurlausnarferli mannkynsins. Fyrirlesturinn verður bæði í máli og undir leiddri hugleiðslu. Verð kr. 5.000,-

Lesa meira

Mannkyn ljós og skuggar og Vitund hjartans

Tveir fyrirlestrar

3. janúar 2007

Eldey Huld Jónsdóttir verður með tvo fyrirlestra á vorönninni. 

Þriðjudaginn 20. mars kl. 20 verður hún með fyrirlesturinn Mannkyn, ljós og skuggar. Þar fjallar hún um mannkynið og mismunandi hópa innan þess meðal annars út frá skilgreiningum Torkum Saraydarian og Ananda Tara Shan. Verð kr. 5.00.-

Þriðjudaginn 17. apríl kl. 20 fjallar hún um vitund hjartans og ferli þess að flytja vitundina í hjartastöðina og lifa út frá hjartanu. Verð kr. 5.000.-

Lesa meira

The Way to the Consciousness of the Heart

How to learn to love?

1. ágúst 2006

Laugardaginn 30. september kl. 10 - 17 verður dagsnámskeið á vegum Jan Ruben, Henning Klibo, Lars Lindhardt og Martin Binderup en þeir hafa starfað saman innan Guðspekisamtakanna í Danmörku í um 20 ár. Námskeiðið fer fram á ensku. Í auglýsingu segir:

The workshop is based on creating personal tools to be able to build a way into the consciousness of the heart. Contents of the program:

What is really the heart? How do we open the heart? The importance of music for the heart. Symbols that express the multiplicity of the heart. How to nourish the heart. How to develop the heart individually, and in the group. How to create individual heart rituals. The dangers that remove the person from his/her own heart into the darkness of the night.

Verð kr. 3.500.-

Lesa meira

Colours of Heart

Páskadagskrá með Ann Phillis

1. janúar 2005

Ann Phillis frá Ástralíu verður með dagskrá dagana 24. til 29. mars undir yfirskriftinni Colours of the Heart - Easter Renewal Retreat. Hver dagur er tileinkaður einum til tveimur litum hjartans. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Ann www.rainbowtara.org eða á skrifstofu samtakanna.

Lesa meira

Remembering the furture

Tónleikar

2. janúar 2004

Hjónin Lars og Hennie Lindhardt frá Danmörku verða með tónleika þriðjudaginn 17. febrúar kl. 20. Þau eru bæði í Guðspekisamtökunum í Danmörku og hafa um árabil spilað í tríóinu Yasodharaband en koma nú fram undir nafninu White Lotus. Þau munu leika eigin lög með því markmiði að heila og upplyfta áheyrendum og skapa þann frið og gleði sem englarnir standa fyrir. Aðgangseyrir er kr. 1.100.-

Hægt er að panta einkatíma hjá Lars en hann málar verndarengla fólks og miðlar skilaboðum frá þeim. 

Lesa meira

Cosmic Heart Flow - Fire of Renewal

Helgarnámskeið með Ann og Brenton

1. janúar 2004

Páskahelgina 9. til 11. apríl 2004 verða hjónin Ann og Brenton Phillis frá Ástralíu með dagskrá í miðstöðinni. 

Föstudaginn 9. apríl kl. 14:30-17 verður námskeiðið Meistari í heiminum þar sem fjallað verður um heimsýn Meistara R og náð umbreytingar og karmaendurlausnar með Lafði Portíu. Verð kr. 1.000.-

Laugardaginn 10. apríl kl. 10-17 verður námskeiðið Alheimslegt hjartaflæði - Eldur endurnýjunarinnar. Fjallað verður um heilunarnáð okkar tíma sem færir gleði, heilun, tilgang og endurnýjun. Verð kr. 6.000.-

Sunnudaginn 11. apríl kl. 14:30 - 17 verður námskeiðið Alheimslegt hjarta - Móðirin: hið flæðandi hjarta sem byggir upp regnbogabrúna í gegnum Móðurina til að ná til allra. Verð kr. 1.000.-

Ann og Brenton eru okkur að góðu kunn. Þau heimsóttu miðstöðina fyrir ári síðan með dagskrá og einkatímum sem þau bjóða einnig upp á að þessu sinni.

Lesa meira

Möntrur og hugleiðsluiðkun

Námskeið í nóvember 2003

3. september 2003

Fyrsta námskeiðið af fjórum í röð Hjartaflæði námskeiða þar sem kennd er hugleiðsluiðkun og notkun mantra verður laugardagana 15. og 22. nóvember frá 10-13 og þriðudaginn 25. nóvember kl. 20-22. Möntruiðkun er ævagömul aðferð til að breyta aðstæðum í lífi fólks og til að ná fram betri andlegri, tilfinningalegri og líkamlegri líðan. Þær eru nauðsynlegur hluti af daglegri andlegri iðkun. Með hugleiðsluiðkun má fá fram betri stjórn á hugsunum, tilfinningum og öllu atferli. Hugleiðsluiðkun örvar sambandið við sálina og þar með andlegan þroska okkar. Á námskeiðinu verður kennd undirstöðuatriði hugleiðsluiðkunar og Udhana hugleiðslukerfi Guðspekisamtakanna kynnt. Kennari er Eldey Huld Jónsdóttir. Verð kr. 2.000.-

Lesa meira

Karma release and Ascension

Námskeið með Ann og Brenton Phillis

1. mars 2003

Ann og Brenton Phyllis frá Ástralíu verða með námskeiðið Hið lifandi ljós hjartans: karmaendur lausn og uppstigning laugardaginn 5. júlí kl. 9:30 - 17:00. Hreinsaðu karmísk mynstur og lyftu sveiflutíðni þinni. Kenndar verða aðferðir til sjálfsheilunar og umbreytingar og til að vekja til lífsins ljós sjálfsins innra með þér. Ann og Brenton hafa stundað guðspeki árum saman og haldið ótal fyrirlestra og námskeið Námskeiðið fer fram á ensku. Verð kr. 5.500.-

Lesa meira
  • Fyrri
    • 1
    • 2
    • 3
    • 4
    • 5
  • Næsta

Eldri fréttir

  • Ný heimasíða Nýju Avalon
    28. janúar 2018
  • Arjuna og Dorthe
    1. ágúst 2017
  • Ananda Tara Shan
    1. ágúst 2016
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    1. febrúar 2016
  • Regnbogaheilunarhringur
    11. febrúar 2015
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    10. janúar 2015
  • Örlög jarðar
    23. október 2014
  • Songs of Love and Light
    1. ágúst 2014
  • Kyrrðardagar Sólheimum
    1. febrúar 2014
  • Hildigaard von Bingen
    1. september 2013
  • Karma og endurholdgun
    4. apríl 2013
  • Eiginleikar hjartans
    1. september 2012
  • Konsert með Asher Quinn (Asha)
    1. júní 2012
  • Wesakskóli að Sólheimum í Grímsnesi
    1. maí 2012
  • Iceland Renewal Journey
    1. mars 2012
  • Heilun jarðar í verki
    1. janúar 2012

Nýja Avalon miðstöðin

  • Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
  • info@nyjaavalon.is
  • 898 4373